Móttaka umsókna fyrir inntöku í Hringsjá
Umsóknarfrestur er til 31. maí fyrir haustönn og 16. nóvember fyrir vorönn.
Umsóknareyðublað er hægt að fá á skrifstofu Hringsjár, Hátúni 10d, eða sækja hér með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

Panta má tíma hjá námsráðgjafa (Helgu, helga@hringsja.is ) eða forstöðumanni
(Lindu, rlinda@hringsja.is ) til að fá frekari upplýsingar og ræða málin.
Síminn er 510 9380 (kl. 9:00 til 15:30).
Inntaka nýnema
Inntökuferli við Hringsjá er þannig:
- Umsækjandi sækir sjálfur um skólavist með því að fylla út umsókn. Greinargerð umsækjanda um persónulegar aðstæður og hvata fyrir námi
hefur áhrif á inntöku í skólann. Mest um vert er að umsækjandi hafi áhuga fyrir því að læra og treysti sér í fullt nám.
- Fullt nám við Hringsjá er almennt 3 annir. Almennt er ekki unnt að verða við umsóknum frá
nemendum sem áður hafa lokið fullu námi frá Hringsjá.
- Með umsókn verður að fylgja tilvísun/meðmæli frá viðurkenndum tilvísunaraðila (skv. gildandi þjónustusamningi),
s.s. Tryggingastofnun ríkisins (endurhæfingarmatsteyminu), velferðarþjónustu sveitarfélags, Vinnumálastofnun, heilsugæslu eða öðrum sérfræðingum.
Tilvísunin styður umsóknina og veitir jafnframt upplýsingar um heilsufarssögu viðkomandi.
- Umsækjandi styður umsókn sína um skólavist með viðtali við námsráðgjafa eða skólastjóra þar sem rætt er um markmiðið með náminu,
og hvort Hringsjá henti þeim markmiðum sem viðkomandi hefur.
- Umsækjandi skal almennt áður hafa lokið a.m.k. 1 námskeiði hjá Hringsjá. Virkni og þátttaka á námskeiðum hefur áhrif
á það hvort umsækjandi hlýtur skólavist. Við lok hvers námskeiðs fyllir kennari út matsblað þar sem hann metur hvort
hann telur að nemandi sé tilbúinn til að fara í fullt nám. Þá er sérstaklega horft til mætinga á námskeiðin og áhuga og virkni í tímum.
- Umsóknir um fulla skólavist eru öllu jöfnu metnar af forstöðumanni og námsráðgjafa Hringsjár. Inntaka nemenda veltur á
því hversu margar umsóknir berast hverju sinni, en heildarfjöldi nemenda við skólann hverju sinni er allt að 60 nemendur.
Við mat á umsóknum er horft til ofangreindra þátta. Öllum umsóknum er svarað skriflega. Ef um er að ræða undantekningu á einhverjum
ofangreindra þátta varðandi umsókn, getur afgreiðsla umsóknar verið borin fyrir stjórn Hringsjár.
Ef umsækjandi er ósáttur við afgreiðslu umsóknar sinnar getur hann vísað máli sínu til stjórnar Hringsjár.
Erindið skal vera skriflegt, og verður í framhaldinu tekið fyrir af stjórninni.
Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Fax: 562 2843 Tölvupóstur: helga@hringsja.is
Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.