Merki Hringsjár

Hvað er Hringsjá?

Hlutverk Hringsjár er að veita náms- og starfsendurhæfingu skv. lögum 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir, lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar og lögum nr. 29/1002 um málefni fatlaðra.

Markmið og stefna

Markmið Hringsjár er að veita náms- og starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám og/eða að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði. Námið hentar einnig þeim sem hafa litla grunnmenntun eða sértæka námserfiðleika.

Endurhæfingin felst í einstaklingsmiðuðu námi í formi styttri námskeiða eða fullu einingarbæru námi með sérhæfðri ráðgjöf og stuðningi. Námið miðast við að:

  • leggja eða endurnýja almennan þekkingargrunn einstaklinga
  • undirbúa einstaklinga fyrir almenn skrifstofu- og þjónustustörf.
  • efla persónulega færni einstaklinga.
  • efla félagslega færni einstaklinga
  • auka samfélagslega þátttöku einstaklinga.
  • auka lífsgæði einstaklinga og fjölskyldna þeirra.

Sérstaða

Sérstaða Hringsjár felst m.a. í því að um er að ræða einstaklingsmiðað nám. Samhliða kennslu býðst notanda þjónustunnar að nýta sér sérfræðilega ráðgjöf og í ákveðnum tilvikum er um að ræða einstaklingsmiðaða einkakennslu.

Stjórn Hringsjár

Öryrkjabandalagið skipar í stjórn Hringsjár, sem fundar að jafnaði mánaðarlega.

Núverandi stjórn er bráðabirgðastjórn til 31. desember 2010 og er þannig skipuð:

Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Fax: 562 2843 Tölvupóstur: rlinda@hringsja.is

Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.