Stuðningur í Hringsjá
Margar leiðir í átt að árangri
Til að námið og endurhæfingin gangi sem best þarf að fjarlægja sem mest af þeim áreitum
sem trufla og hindra einstaklinginn í að ná fram sínu besta. Og það er mikilvægt fyrir
einstaklinginn í Hringsjá að vita að henni / honum standa til boða margvísleg úrræði.
Hér er yfirlit yfir það helsta sem nemendur Hringsjár geta nýtt sér til viðbótar við
þau úrræði sem eru í boði samkvæmt stundaskrá.
Ýmis stuðningur í boði í Hringsjá
Bara stuðningspúðar og hálskragar
Bæta setstöðu, minnka verki í herðum, handleggjum og höndum. Auðvelda einnig fólki að stunda iðju.
Fara efst á síðu
Blindrabókasafnið
Allir nemendur Hringsjár geta nýtt sér þjónustu bókasafnsins.
Fara efst á síðu
Dagsljósalampar
Nemendur Hringsjár geta fengið afnot af dagsljósalömpum við vinnu sína í Hringsjá.
Skortur á sólarljósi í skammdeginu getur leitt til truflana á hormónastarfsemi, þunglyndis, orkuskorts og almennrar vanlíðunar.
Venjuleg ljós koma ekki í stað sólarljóss. Hið sérstaka, bjarta ljós dagsljósalampanna líkir eftir náttúrulegu sólarljósi og getur haft bætandi áhrif á skammdegisvanlíðan.
Fara efst á síðu
Davis lesblinduleiðrétting
Nemendum Hringsjár, sem greindir eru með lesblindu býðst Davis lesblinduleiðrétting.
Um er að ræða einstaklingsnámskeið sem tekur um 40 kennslustundir þar sem nemandi vinnur í 5-7 daga lotu með sérmenntuðum Davis ráðgjafa.
Í kjölfarið býðst nemendum eftirfylgni í litlum hópum þar sem aðferðinni er viðhaldið.
Fara efst á síðu
Easy Tutor forritið
Talgervill og fleira sem auðveldar lesblindum nám.
Fara efst á síðu
Félagsráðgjöf
Sigríður Margrét Hermannsdóttir: Sigga Magga er félagsráðgjafi Hringsjár.
Hægt er að panta tíma hjá henni sjálfri eða hjá ritara.
Hún sér m.a. um endurnýjun á endurhæfingarlífeyri, eftirfylgni og almenna félagslega ráðgjöf.
Fara efst á síðu
Forstöðumaður Linda Skúladóttir
Það er hægt að panta viðtal ef þörf er hjá henni sjálfri eða hjá ritara.
Fara efst á síðu
Gagnvirki kennsluvefurinn stodkennarinn.is
Allir nemendur fá aðgang að vefnum.
Fara efst á síðu
Hollur morgunmatur
Hafragrautur og lýsi gefa orku og auka virkni á morgnana. Frítt!
Fara efst á síðu
Hemi-Sync diskar
Um er að ræða hljóðmynstur sem samstillir
heilahvelin samtímis með því að breyta bylgjulengd sem hann vinnur á.
Athyglin verður betri, minni eykst og fólk hvílist betur og nær betri svefni.
Fara efst á síðu
Höfuðsett sem útiloka umhverfishljóð
Sem hjálpa þeim sem eiga erfitt með að halda einbeitingu.
Fara efst á síðu
Lesgreiningar
Katrín R. Hjálmarsdóttir sérkennari sér um lesgreiningar fyrir þá nemendur ef grunur er um sértæka lestrarerfiðleika. Notast er við LOGOS forritið.
Fara efst á síðu
Lofthreinsitæki
Í hverju herbergi Hringsjár. Auðveldar þeim öndun sem eiga við mikið ofnæmi, astma eða mígreni að etja.
Einnig þeim sem eru með ný líffæri, þ.e. eru líffæraþegar. Hreinsar loftið, eyðir lykt og drepur bakteríur.
Fara efst á síðu
Náms- og starfsráðgjöf
Helga Eysteinsdóttir er náms- og starfsráðgjafi Hringsjár. Hægt er að panta tíma hjá henni sjálfri eða hjá ritara.
Fara efst á síðu
Numicon í stærðfræðinni!
Hjá Hringsjá eru kennarar sem eru sérþjálfaðir við Numicon aðferðafræðina í stærðfræði.
Aðferðin byggir á stórum hluta á að gera tölurnar áþreifanlegar og raunverulegar og
hentar sérstaklega vel fyrir þá sem hafa átt erfitt með að læra stærðfræði eftir hefðbundnum leiðum.
Þegar aðferðinni er beitt er m.a. notast við ákveðin áhöld
sem til eru hjá Hringsjá og hægt er að fá afnot af.
Sálfræðingur
Nemendum Hringsjár bjóðast 3 viðtöl hjá sálfræðingi yfir námstímann.
Notast er við ASEBA matstækið sem er m.a. talið mjög gagnleg við áætlunargerð við upphaf náms- og starfsendurhæfingar.
Stundum hafa nemendur þörf fyrir sálfræðimeðferð og er þá oftast leitað til
velferðarþjónustu eftir stuðningi við slíkt
Fara efst á síðu
Sérkennsla
Hægt er að leita til náms- og starfsráðgjafa þegar nemandi telur þörf á auknum stuðningi við námið.
Fara efst á síðu
Stillanleg borð og stólar
Elsa Þorvaldsdóttir iðjuþjálfi sér um að leiðbeina með val og líkamsbeitingu.
(Nei húsgögnin okkar eru ekki eins og myndin sýnir en þau eru samt stillanleg!)
Fara efst á síðu
Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Tölvupóstur: helga@hringsja.is
Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.