Merki Hringsjár

Minnistækni

Mynd

Námskeið í minnistækni

Yfirlit námskeiða

Markmið Á námskeiðinu verður kennd tækni til þess að efla og bæta minnið.
Markhópur Námskeiðið hentar þeim sem eiga við hversdagsgleymsku að stríða, hafa skert minni eftir veikindi eða áföll eða vilja bæta minni sitt af öðrum ástæðum. Með því að beita minnistækni nýtum við tíma okkar betur, erum skipulagðari, sjálfsöryggi eykst og allt nám gengur betur.
Innihald Minnistækni byggir á ævafornum aðferðum sem hafa staðist tímans tönn. Kenndar verða aðferðir sem m.a. hjálpa við að:
  • Takast á við hversdagsgleymsku (hvar setti ég lyklana, gleraugun, hvenær á ég tíma hjá lækninum o.s.frv.)
  • Muna mikið magn upplýsinga (nýtist sérstaklega vel í námi!)
  • Muna nöfn
  • Muna ártöl og aðrar tölur
  • Muna dagsetningar og atburði
  • Bæta skipulagningu og tímastjórnun
Námsefni Efni frá kennara.
Kennsluaðferð Kennt verður í litlum hópum, alls 8 skipti í 2 klukkustundir í senn. Nánar um hvað er gert í hverjum tíma:
  1. Hvað er minnistækni og hvenær er gott að nota?
  2. Hvers vegna munum við sumt en gleymum alltaf öðru?
  3. Hinar ýmsu minnisaðferðir skoðaðar
  4. Að muna nöfn
  5. Að muna ártöl og tölur
  6. Dagsetningar og atburðir
  7. Hugarkort – Að bæta skipulag og minni
  8. Upprifjun og samantekt
Ávinningur Með því að beita minnistækni nýtum við tíma okkar betur, erum skipulagðari, sjálfsöryggi eykst og allt nám gengur betur.
Lengd 30 kennslustundir
Tímasetning Almennt tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, 2 klst. í senn.

Sjá nánar í yfirliti námskeiða.

Kennari Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Kolbeinn Sigurjónsson.

Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Tölvupóstur: helga@hringsja.is

Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.