Hefurðu átt erfitt með að læra ensku eða kannski haldið að þú gætir bara alls ekki lært ensku?
Yfirlit námskeiða
| Markmið |
Að einstaklingsmiðuð kennsla sem mætir þörfum hvers
og eins nemanda verði upphafið að góðum enskugrunni.
|
| Markhópur |
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa átt mjög erfitt með að læra ensku/önnur tungumál.
|
| Innihald |
- Kynning og inngangsæfingar
- Ólíkar námsaðferðir fyrir ólíka nemendur
- Uppbygging orðaforða
- Leiðir til að læra ensku með hlustun
|
| Námsefni |
Vinnumappa sem nemendur fá til eignar.
|
| Kennsluaðferð |
Notast er við myndrænar og jafnvel óhefðbundnar aðferðir
sem nýst hafa vel á öðrum sviðum. Áhersla er lögð á að bæta
orðaforða og að auka sjálfstraust nemenda. Ekki eru gerðar
kröfur til mikillar ritunar- eða málfræðikunnáttu.
Unnið er út frá hugmyndum um minnisfræði varðandi það hvernig
við (þ.e. heilinn) lærir hluti betur.
Notast verður við myndræna, verklega nálgun og skapandi nálgun.
|
| Ávinningur |
Að nemandi taki sín fyrstu skref við í enskunámi, læri aðferðir
sem gagnast honum, öðlist áhuga á að halda áfram og
trú á eigin getu til enskunáms.
|
| Lengd |
30 kennslustundir
|
| Tímasetning |
Almennt tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, 2 klst. í senn.
Sjá nánar í yfirliti námskeiða.
|
| Kennari |
Kolbeinn Sigurjónsson kerfisfræðingur og Davisráðgjafi.
|
Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Tölvupóstur: helga@hringsja.is
Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.