Davis lesblinduleiðrétting

Nemendum Hringsjár, sem greindir eru með lesblindu býðst Davis lesblinduleiðrétting.
Ætla má að um 30-40% nemenda sé með lesblindu eða um 18-25 manns.
Davis lesblinduleiðrétting er einstaklingsnámskeið sem tekur um 40 kennslust./30 klst. Unnið er í 5-7 daga lotu með ráðgjafa.
Helstu atriði sem farið er yfir:
- Skynstilling: hjálpar einstaklingnum að halda athygli og skynja hluti rétt. Skynstilling kemur, til dæmis, í veg fyrir að stafir snúist eða hverfi af blaði við lestur, eða einstaklingur heyri aðeins hluta af setningu. Einnig hefur skynstilling jákvæð áhrif á jafnvægi.
- Orkuskífa: hugaræfing til að ná valdi á eigin orku og koma í veg fyrir spennu.
- Slepping: slökunaraðferð sem losar um spennu í líkamanum.
- Lestraræfingar: æfingar sem þjálfa hreyfingu augna frá vinstri til hægri, auka hæfni í að þekkja stafahópa sem orð og bæta lesskilning.
- Stafa og orðameistrun: Stafrófið og greinarmerki eru mótuð í leir einnig myndlaus orð ( kveikjuorð: orð sem kveikja á skynvillu og rugla hinn lesblinda í lestri því skilning vantar). Merking orða er mótuð í þrívíða mynd til að tryggja að fullum skilningi sé náð Í þessu ferli þjálfast einstaklingurinn í notkun orðabókar og eykur skilning á merkingu orða.Þjálfar skynstillingu og virkjar eigin sköpunargáfur.
Í lok leiðréttingar gerir einstaklingurinn áætlun þar sem hann skipuleggur áframhaldandi vinnu við kveikjuorð ( myndlaus orð) og aðrar æfingar. Hann fær sérstaka vinnubók og kveikjuorðabók sem auðveldar vinnuna.
Einnig fær hann leir, áhöld, dúskbolta og fleira.
Kveikjuorðin eru ríflega 200 svo líklegt er að það taki hvern og einn um það bil 1 ár eða meira að vinna öll orðin.
Til að auðvelda nemendum Hringsjár þessa vinnu er boðið upp á leirtíma 2-4 stundir í viku. Það eru hóptímar þar sem einstaklingar vinna með kveikjuorð og ráðgjafi er til staðar til aðstoðar ef með þarf.
Einnig er í boði viðtalstími einu sinni í viku fyrir þá sem vilja.
Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Tölvupóstur: helga@hringsja.is
Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.