Merki Hringsjár

Bókhalds- og Excelnámskeið

Mynd

Hagnýtt námskeið fyrir þá sem stefna á frekara nám eða skrifstofustörf.

Yfirlit námskeiða

Markmið Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að:
  • Þekkja tilgang og helstu grunnatriði bókhalds.
  • Þekkja lykilhugtök í fjárhags-, viðskiptamanna- og launabókhaldi.
  • Kannast við helstu atriði við uppgjör virðisaukaskatts.
  • Kunna grunnatriði í Excel forritinu og geta unnið með bókhald í Excel.
Markhópur Þátttakendur læra færslu bókhalds frá grunni og því ekki gert ráð fyrir forþekkingu og námskeiðið nýtist einnig þeim sem hafa ákveðinn grunn fyrir. Einnig verður kennt á Excel forritið frá grunni.
Innihald Í þessu námskeiði er farið yfir grundvallaratriði og hugtök í bókfærslu og bókhaldi fyrirtækja og einstaklinga. Kenndar eru dagbókarfærslur, opnun og lokun höfuðbókar og tengsl þessara bóka. Lögð er áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi þess fyrir rekstraraðila að halda gott bókhald og temja sér skipulagningu við vinnslu þess. Unnið með Excel forritið og lögð áhersla á hagnýtingu forritsins við vinnslu bókhalds.
Námsefni Vinnumappa sem nemendur fá til eignar.
Kennsluaðferð Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem nemendur geta unnið verkefni á þeim hraða sem hentar hverjum og einum.
Ávinningur Undirbúningur fyrir frekara bókhaldsnám eða vinnu við bókhald.
Lengd 30 kennslustundir
Tímasetning Almennt tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, 2 klst. í senn.

Sjá nánar í yfirliti námskeiða.

Kennari Halldór Örn Þorsteinsson, bókfærslu- og stærðfræðikennari í Hringsjá og viðskiptafræðingur MSc.

Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Tölvupóstur: helga@hringsja.is

Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.