Markmið
Markmiðið er að þeir sem útskrifast frá Hringsjá séu færir um að takast á við nám í
almennum framhaldsskólum og finna störf við hæfi á almennum vinnumarkaði.
Námsmarkmið felast annars vegar í að almennur þekkingargrunnur er lagður eða
endurnýjaður og hins vegar í nokkurri sérhæfingu sem tekur þá mið af skrifstofu- og
þjónustustörfum m.a. tölvufærni og bókhaldsþekkingu.
Um leið og unnið er að þessu markmiði fer fram mat á stöðu einstaklingsins og
hann lærir einnig að þekkja sjálfan sig betur, óskir sínar, hæfileika, getu og takmarkanir.
Raunhæfara sjálfsmat, aukið sjálfstraust og þor eru þannig einnig höfð að markmiði.
Hvað er gert?
Starfið snýst um hjálp til sjálfshjálpar og byggir fyrst og fremst á námi og kennslu,
ráðgjöf, stuðningi og samvinnu.
Kennslugreinar eru:
- Íslenska:
lestur, stafsetning, málfræði, bókmenntir og tjáning, munnleg, skrifleg og leikræn.
- Enska:
talað og ritað mál. Netið notað við kennslu.
- Stærðfræði:
almennur grunnur, verslunarreikningur og tölfræði. Einnig er komið á móts við nemendur með
kennslu námsefnis annarra áfanga framhaldsskóla eftir því sem þörf þykir.
- Bókfærsla:
almennur grunnur og tölvubókhald
- Samfélagsfræði:
almenn félagsfræði, íslenska samfélagið, stjórnarskráin, réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
- Tölvufræði:
kennd notkun ýmissa forrita með áherslu á ritvinnslu (Word) og töflureikni (Excel).
Einnig tölvupóst, netnotkun, vefsíðugerð og gerð kynningarefnis.
- Myndlist:
fjölþætt skapandi starf, málun, leirmunagerð o.fl.
- Námstækni:
skipulögð vinnubrögð.
- Náms- og starfsfræðsla:
starfsval, ferilskrá, atvinnuumsóknir o.fl.
- Sjálfseflingarnámskeið:
að axla ábyrgð á eigin vellíðan.
- Ráðgjöf:
Náms- og starfsráðgjafi veitir persónulega ráðgjöf ásamt náms- og starfsráðgjöf.
Ráðgjafarviðtöl eru einnig veitt utanaðkomandi einstaklingum, oft með tilvísun frá samstarfsaðilum.
Útskrifaðir nemendur leita oft ráðgjafar og eftirfylgd við þá er mikilvægur liður starfseminnar.
Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Fax: 562 2843 Tölvupóstur: rlinda@hringsja.is
Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.