Merki Hringsjár

Félagslíf

Í Hringsjá er góð aðstaða jafnt í og utan kennslustunda.

Nemendur hafa afnot af bókasafni, lestraraðstöðu og tölvuveri.

Kaffistofa er rekin af nemendum sem liður í náminu og sem fjáröflun.

Helstu atburðir í félagslífinu:


  • Tyllidagar, en svo eru nefndir nokkrir dagar á vorönn, sem eru nýttir til annars en hins hefðbundna. Þá hafa m.a. verið fengnir gestafyrirlesarar, fræðsla um ýmislegt sem áhugi hefur verið fyrir hverju sinni, farið í vettvangsferðir, söfn og leikhús. Dansað og leikið á ýmsa lund.
  • Í lok tyllidaganna er svo árshátíð skólans.
  • Dagur íslenskrar tungu á haustönn.
  • Haustgleði í lok prófa eftir fyrri lotuna.
  • Og ekki má gleyma útskriftum í lok anna, sem alltaf eru miklir viðburðir.
Dagsetningar má sjá í skóladagatalinu (PDF skjal).

Myndasafn

Ferð í Árbæjarsafn apríl 2010.

Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Fax: 562 2843 Tölvupóstur: rlinda@hringsja.is

Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.