Merki Hringsjár

Texti til að æfa músina

Hér er hægt að æfa þær aðgerðir með músinni sem textinn lýsir.

Breytingarnar varðveitast ekki. Ýttu á F5 lykilinn til að sækja síðuna aftur (og þar með þurrka út allar breytingar).

Það er líka hægt að skrifa nýjan texta hér, en hann hverfur þegar síðan er sótt aftur.

BENDA

Setja músarbendillinn á einhvern hlut á skjánum. Oft breytir bendillinn um lögun eftir því hvar hann er. Lögunin gefur vísbendingu um hvað hægt er að gera með músinni á þeim stað.

SMELLA

Smella einu sinni með VINSTRI hnapp. Til að velja það sem músarbendillinn bendir á.

HÆGRISMELLA

Smella einu sinni með hægri hnapp. Kalla fram lista með aðgerðum fyrir hlutinn sem músarbendillinn bendir á.

TVÍSMELLA

Smella TVISVAR HRATT. Velja og framkvæma um leið.

DRAGA

Benda á hlut, HALDA NIÐRI músarhnappi OG FÆRA músina. Hluturinn á að færast með.

*********************************************************

Svo er hægt að nota músina með lyklaborðinu. Nokkur dæmi:

*********************************************************

SHIFT lykill + SMELLA

Halda niðri Shift lykli og smella. Velja fleiri en einn samliggjandi hlut.

CTRL lykill + DRAGA

Halda niðri Ctrl lykli og draga. Búa til afrit eða velja fleiri en eitt svæði.

Hringsjá náms– og starfsendurhæfing, Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími: 510 9380 Tölvupóstur: helga@hringsja.is

Opnunartími Hringsjár er mánudaga-fimmtudags frá kl. 8:30-12:00 og 13:30-15:30,
en á föstudögum frá kl. 8:30-12:00.