Texti til að æfa lyklaborðið
Hér er hægt að æfa að nota ýmsa lykla á lyklaborðinu.
Ath. Breytingar sem þú gerir varðveitast ekki. Ýttu á F5 lykilinn til að sækja síðuna aftur (og þar með þurrka út allar breytingar).
ÖRVARLYKLARNIR
Örvarlyklarnir fjórir.
Algeng notkun:
- Færa textabendilinn (þann sem blikkar) til vinstri eða hægri um EINN STAF (ath. bilin eru líka stafir).
- Færa textabendilinn upp eða niður um EINA LÍNU (ath. sumar línur geta verið tómar).
Æfðu örvarlyklana hér:
Verkefni 1: Örvarlyklar til vinstri og hægri
Smelltu framan við J í textareitnum til að setja textabendilinn framan við J.
Slepptu svo músinni og notaðu örvarlykilinn til hægri til að færa textabendilinn og
telja hve margir stafir eru í textanum "Jónas Hallgrímsson.".
Hvað eru margir stafir í þessum texta?
Verkefni 2: Örvarlyklar upp og niður
Notaðu örvarlyklana til að kanna hvað þessi texti hefur margar línur. Ath. að sumar línurnar hafa engan texta.
Hvað eru margar línur í þessum textareit?
Nokkrar skilgreiningar
Áður en lengra er haldið er gott að hafa á hreinu eftirfarandi hugtök sem koma fyrir í skrifuðum tölvutexta.
- Stafur: (Enska: character) Öll tákn sem eru skrifuð með lyklaborðinu þar á meðal bókstafir A til Ö, tölustafir 0 til 9, bil og ýmis tákn t.d. (.;,/"#+*-=), en einnig stafir sem eru ekki sýnilegir en hafa merkingu fyrir tölvunni.
- Bil: (Enska: space, word space) Sérstakur ósýnilegur stafur sem er aðallega notaður til að aðskilja orð.
- Lína: (Enska: line) Allir stafir sem raðast saman hlið við hlið á blaði eða skjá mynda línu. Línur geta virst vera tómar, þ.e. innihaldið enga sýnilega stafi. Þegar texti er skrifaður er best að leyfa honum að raðast sjálfkrafa í línur. Lengd textalínu ræðst af plássinu sem textanum er ætlað. T.d. í Word ræðst línulengdin m.a. af stærð blaðsins, spássíum og inndrætti.
- Orð: (Enska: word) Fyrir tölvunni eru það stafirnir milli tveggja bila (að slepptum greinarmerkjum svo sem punkti eða kommu), ekki endilega íslenskt orð.
- Málsgrein: (Enska: paragraph). Getur innihaldið engan, einn eða fleiri stafi og orð. Málsgrein í tölvutexta
er því ekki sama og málsgrein í íslensku. Í tölvutexta endar málsgrein þegar ýtt er á Enter lykilinn og um leið verður til ný málsgrein.
Þegar ýtt er á Enter kemur sérstakur ósýnilegur stafur í textann. Þessi stafur er nefndur málsgreinarmerki og er það alltaf síðasti stafurinn í málsgrein.
Málsgreinarmerki er líka alltaf síðasti stafurinn í viðkomandi línu, þannig að næsta málsgrein byrjar í línunni fyrir neðan.
Ef ýtt er á Enter án þess að skrifa neitt í málsgreinina verða því til auðar línur (auðar málsgreinar).
Dæmi: Þessar skilgreiningar eru hver ein málsgrein sem endar á málsgreinarmerki. Í vísunni eftir Jónas er hver lína ein málsgrein (líka þær auðu og líka strikin).
Æfingar með þessi hugtök
Verkefni 3: Hvað eru stafir?
Hvað eru margir stafir í línunni hér fyrir neðan?
Smelltu til að sjá svarið
22 stafir með bilunum. Aðferð: Byrjaðu framan við A og notaðu hægri örvarlykil til að telja stafina.
Mundu að öll tákn sem við skrifum eru stafir fyrir tölvunni, líka bilin.
Verkefni 4: Bil eru líka stafir
Hvað eru mörg bil á milli A og B hér fyrir neðan? En B og C?
Verkefni 5: Bil á milli stafa
Af hverju er þetta orð svona langt?
Verkefni 6: Hvað eru orð?
Mundu að tölvan lítur á allar stafarunur sem "orð" og að hún notar fyrst og fremst bil að afmarka orð.
Ábending: Með CTRL lykli ásamt hægri eða vinstri örvarlykli færist textabendillinn um eitt "orð" í einu.
Hvað eru mörg orð (samkvæmt skilningi tölvunnar) hér fyrir neðan?
Smelltu hér til að sjá svarið
Svar: 11 "orð". Taktu eftir að 20>10 er þrjú "orð". Það má líka sjá hva tölvan telur vera orð með því að tvísmella á textann.
Taktu líka eftir að það skiptir ekki máli hvort það er eitt bil eða fleiri á milli tveggja "orða".
Verkefni 7: Hvað er málsgrein?
Mundu að málsgrein í tölvu er ekki það sama og málsgrein í íslensku máli. Í tölvutexta getum við kannað málsgreinar
með Ctrl lykli ásamt upp og niður örvarlyklum sem láta textabendilinn hoppa á milli málsgreina.
Með músinni er hægt að velja heila málsgrein með því að ÞRÍsmella!
Hvað eru margar málsgreinar í þessum sögubút?
Smelltu hér til að sjá svarið
Svar: Það eru 13 málsgreinar (paragraph), þar af þjár sem innihalda engan texta (auðar línur)
og fjórar sem innihalda strik, punkta eða stjörnur.
Í íslensku máli mundum við segja að það væru 4 eða 5 málsgreinar.
Prófaðu þetta: Settu textabendilinn framan við "Báðar" í "Báðar voru þær..." og ýttu á Enter lykil.
Þetta skiptir málsgreininni í 2 málsgreinar. Ýttu aftur á Enter. Nú er ein málsgrein orðin þrjár (tvær með texta og ein auð á milli).
Notaðu bakklykilinn tvisvar til að eyða ósýnilegu málsgreinarmerkjunum. Nú er þetta ein málsgrein aftur.
ÖRVARLYKLAR með ÖÐRUM LYKLUM
Örvarlyklarnir fjórir. Á myndinni má líka sjá Shift (sjift) lykilinn (efst til vinstri) og Ctrl (kontrol) lykilinn fyrir neðan.
Með Ctrl lykli
Ef Ctrl lykli er haldið niðri breytist virkni örvarlyklanna:
- Ctrl + vinstri eða hægri ör: Færir ritbendilinn um EITT orð til vinstri eða hægri
(stoppar líka við punkta, kommur og önnur greinarmerki).
- Ctrl + upp eða niður ör: Færir ritbendilinn um EINA EFNISGREIN upp eða niður
(nákvæmlega: frá einu Enter tákni til annars).
Æfing: Notaðu þennan texta til að æfa Ctrl lykil með örvarlyklum.
Með Shift lykli
Ef Shift lykli er haldið niðri er hægt að nota örvarlyklanna til að velja (blokka) texta:
- Shift + vinstri eða hægri ör: Færir ritbendilinn um EINN staf til vinstri eða hægri og VELUR stafinn um leið.
- Shift + upp eða niður ör: Færir ritbendilinn um EINA LÍNU upp eða niður og VELUR línuna um leið.
Æfing: Notaðu þennan texta til að æfa Shift lykil með örvarlyklum.
Verkefni: Lagaðu vísuna hér fyrir neðan. Veldu heilar runur af X (ekki eitt í einu) og eyddu þeim með því að slá á Delete lykil.
Með Ctrl OG Shift lykli
Ef Ctrl og Shift lykli er báðum haldið niðri þá færist ritbendillinn um heilt orð eða efnisgrein í einu OG velur textann um leið.
Æfing: Ýttu á F5 til að sækja síðuna aftur. Lagaðu vísuna hér fyrir ofan.
Notaðu Ctrl + Shift lyklana til að vera fljótari að velja heil orð (runur af X) eða efnisgreinar.
HOME og END lyklarnir
- Home lykillinn: Færir ritbendilinn fram fyrir fyrsta staf í línu
- End lykillinn: Færir ritbendilinn aftur fyrir síðasta staf í línu
- Ctrl + Home / End: Færir ritbendilinn fremst/aftast í texta
- Shift + Home / End: Færir ritbendilinn fremst/aftast í línu og velur um leið
Verkefni: Lagaðu vísuna hér fyrir neðan. Notaðu Home og End lyklana ásamt Shift til að vera fljótari að velja X-in.
Eyddu þeim með því að slá á Delete lykil.